Nýbyggingar munu rísa við Hringbraut

Á vefsíðu Velferðarráðuneytisins er vitnað í ræðu Kristjáns Þór Júlíussonar, heilbrigðisráðherra á ársfundi Landspítala fyrr í dag. Þar segir meðal annars: „Ráðherra ræddi um staðarval nýbygginga Landspítala og sagði enga spurningu í sínum huga að þær muni rísa við Hringbraut. Hann rakti hvernig staðarvalið hefur verið skoðað og endurskoðað þrisvar sinnum, árin 2002, 2004 og 2008 og alltaf með þeirri sömu niðurstöðu að byggja skuli við Hringbraut. Þá hafi vilji Alþingis ítrekað komið fram þessu til staðfestingar“.  

Fréttina af vefsíðu ráðuneytis má lesa í heild sinni hér.


Svæði

SPÍTALINN OKKAR

Landssamtök um uppbyggingu nýs húsnæðis Landspítala
spitalinnokkar@spitalinnokkar.is