Framkvæmdir við sjúkrahótel boðnar út

Bygging sjúkrahótels er hluti af fyrsta áfanga uppbyggingar Landspítala við Hringbraut. Sjúkrahótelið mun rísa norðan við kvennadeild Landspítala og tengjast Barnaspítala og kvennadeild um tengigang. Sjúkrahótelið verður fjórar hæðir með kjallara og tengigöngum og eru áætluð verklok í júní 2017.

Nýr Landspítali auglýsir eftir tilboðum vegna framkvæmda við sjúkrahótelið en einnig er auglýst eftir tilboðum í lóðaframkvæmdir vegna gatna, göngustíga, bílastæða og grænna svæða ásamt jarðvinnu fyrir sjúkrahótelið.


Svæði

SPÍTALINN OKKAR

Landssamtök um uppbyggingu nýs húsnæðis Landspítala
spitalinnokkar@spitalinnokkar.is