Fundargerð aðalfundar komin á vefinn

Kynningarstarfið var fyrirferðarmikið á fyrsta starfsári samtakanna Spítalinn okkar. Alls voru haldnir 28 kynningarfundir og tvö málþing á starfsárinu. Kynningarstarfið bar árangur og margt gerðist á fyrsta starfsári Spítalans okkar. Alþingi samþykkti aukið fjármagn í byggingaverkefnið þannig að fjárveitingar til verkefnisins á þessu ári verða rúmur milljarður og í samræmi við áætlanir bygginganefndar NLSH. Velferðarráðuneytið hefur falið NLSH að bjóða út fullnaðarhönnun meðferðarkjarna, fullnaðarhönnun sjúkrahótels og að bjóða út undirbúningsframkvæmdir vegna sjúkrahótels.

Stjórnin mun halda kynningarstarfinu áfram á næsta starfsári. Fundargerðina má lesa hér.


Svæði

SPÍTALINN OKKAR

Landssamtök um uppbyggingu nýs húsnæðis Landspítala
spitalinnokkar@spitalinnokkar.is