Kynnt sér vel forsendur uppbyggingar við Hringbraut

Í flottu og greinargóðu viðtali í Reykjavík vikublaði fer Þorkelll Sigurlaugsson, varaformaður stjórnar Spítalans okkar yfir staðsetningu nýbygginga Landspítala og hvað liggur að baki þeirri ákvörðun. Hann segir meðal annars í viðtalinu: „Við höfum kynnt okkur vel forsendurnar og uppbyggingu við Hringbraut. Í svona stórum málum þá hættir almenningi til með að gleyma allri þeirri vinnu sem farið hafði fram við undirbúning nýs Landspítala við Hringbraut. Alþingi hefur samþykkt fjárveitingar og sett lög um verkefnið og öll sveitarfélög höfuðborgarsvæðisins hafa staðfest staðarvalið“.  

Viðtalið má lesa hér. Það hefst á bls. 10 í blaðinu.


Svæði

SPÍTALINN OKKAR

Landssamtök um uppbyggingu nýs húsnæðis Landspítala
spitalinnokkar@spitalinnokkar.is