Fyrsti fundur nýrrar stjórnar sem kjörin var á aðalfundi 26. maí 2025. Að tillögu formanns skipti stjórnin þannig með sér verkum:
• Þorkell Sigurlaugsson formaður. Kjörinn sérstaklega á aðalfundinum.
• Gunnlaug Ottesen varaformaður
• Áslaug Eva Björnsdóttir gjaldkeri
• Atli Rúnar Halldórsson ritari
• Meðstjórnendur: Berglind Magnúsdóttir, Ingibjörg Guðmundsdóttir og Jón Ólafur Ólafsson.
Fundurinn einkenndist eðlilega af þeirri staðreynd að þarna komu saman margir nýliðar í stjórninni í bland við gamalreynda stjórnarmenn, fólk sem þar að auki hafði ekki hist fyrr og því síður kynnst. Fundarmenn gerðu því í upphafi grein fyrir sér og ferli sínum á lífsleiðinni. Kom meðal annars á daginn að meirihluti stjórnar á uppvaxtarrætur á Norðurlandi eystra og vestra (Akureyri, Hvammstangi, Svarfaðardalur)!
Síðara hluta fundar var varið í skoðanaskipti um viðhorf til starfsins í Spítalanum okkar, möguleg viðfangs- og dagskrárefni, skipulag félagsins, hugsanlega (fjárhagslega) bakhjarla – utan við sjálfa félagsmennina og fleira.
Þarna bar fjöldamargt á góma enda hvorki skortur á viðfangsefnum né umræðuefnum á því sviði sem Spítalinn okkar markaði sér í upphafi og hefur starfað á. Sérstaklega komu góðar ábendingar og hugmyndir að áherslumálum frá nýju stjórnarmönnunum Berglindi og Ingibjörgu sem hafa mikla reynslu úr þessum málaflokki og komu með gagnlegar ábendingar á sviði forvarna, heimahjúkrunar, svokölluðum fráflæðivanda og margra annarra þátta sem eru Landspítala mikilvægir. Einnig ábendingar Áslaugar Evu sem er með Master of Art in Digital Management og Bachelor in Marketing with Minor in Brand Building sem ætti að geta nýst okkur vel.
„Innviðaskuld í heilbrigðiskerfinu er stór og mikil. Spítalinn okkar á að hafa mörg járn í eldinum,“ orðaði einn stjórnarmaður það. Þau ummæli ramma ágætlega inn kjarna máls í þessu óformlega spjalli.
Frekari línur verða lagðar með haustinu þegar stjórn kemur saman á ný um það leyti sem sumarið sýnir á sér fararsnið.
Gott væri að koma upp facebook-hóp og mundi Áslaug huga að því o.fl. sem snýr að virkni okkar á samfélagsmiðlum.