Þættir sem tengjast nýjum Landspítala úr nýrri ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2017-2021
Byggingaframkvæmdir við fyrsta verkáfanga, einkum meðferðarkjarna og rannsóknarhús, verða boðnar út árið 2018 og komnar á fullan skrið á árunum 20192021. Þær framkvæmdir koma til viðbótar byggingu sjúkrahótels sem áformað er að ljúki árið 2017 og fullnaðarhönnun nýs meðferðarkjarna sem þegar hafði verið gert ráð fyrir í fjárlögum 2016 og síðustu ríkisfjármálaáætlun en sá kostnaður er áætlaður 5,3 mia.kr. frá árinu 2016.
Í tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2017-2021 segir um nýjan Landspítala:
- ...í áætluninni er þannig gert ráð fyrir fullri fjármögnun á umfangsmiklum framkvæmdum og þýðingarmiklum verkefnum. Ber helst að geta fjármögnun fyrstu áfanga í byggingu nýs þjóðarsjúkrahúss sem mun marka þáttaskil í uppbyggingu á góðri heilbrigðisþjónustu í landinu. Þá er jafnframt fjármagni bætt við gildandi tækjakaupaáætlun fyrir stóru sjúkrahúsin tvö sem mun ennfremur hafa í för með sér mikinn faglegan ávinning fyrir starfsmenn en ekki síst bætta þjónustu við sjúklinga...
- [...]
- ...auk þess sem framundan eru umfangsmiklar fjárfestingar í tengslum við Landspítalann, einkum þegar líður á áætlunartímabilið...
- [...]
- ...frekari uppbygging er fyrirhuguð, sbr. ályktun Alþingis frá janúar 2014 um endurbyggingu LSH við Hringbraut. Framkvæmdir eru hafnar við sjúkrahótel og lokahönnun meðferðarkjarna er hafin skv. fjárlögum ársins 2016...