Spítalinn okkar er með málþing 25.mars n.k. Framtíðin er stafræn- Hvernig styrkir tækni nýjan Landspítala og heilbrigðiskerfið?

Málþing miðvikudaginn 25. mars 2026

kl. 15:30 - 17:45 Í Grósku, Bjargargötu 1 á Vísindagarðasvæði HÍ
1. hæð í Mýrinni fundarherbergi Fenjamýri.

Dagskrá:

15:35 Opnunarorð formanns
Þorkell Sigurlaugsson, formaður Spítalans okkar.

15:45 Stafræn heilsa
Fjallað verður um tilurð og markmið Stafrænnar heilsu, helstu verkefni og framtíðarsýn.
Sigurður Þórarinsson, forstöðumaður stafrænnar heilsu hjá Heilbrigðisráðuneytinu.

16:10 Nýjasta tækni og vísindi
Stafræn framþróun í nútíð og framtíð frá sjónarhóli læknis.
Arnar Þór Guðjónsson, yfirlæknir háls, nef- og eyrnalækninga Landspítala.


16:30 Staða framkvæmda NLSH - Mars 2026
Farið verður yfir stöðu framkvæmda við Hringbraut þar sem verið er að byggja nýjan meðferðarkjarna, rannsóknarhús, bílastæðahús og viðbyggingu við Læknagarð. Jafnframt verður farið yfir stöðu framkvæmda við Grensás, bráðamóttöku í Fossvogi og útboð á viðbyggingu við sjúkrahúsið á Akureyri.

Ólafur Birgisson, sviðsstjóra framkvæmdasviðs Nýja Landspítala ohf.

16:50 Nýr Landspítali til framtíðar
Uppbyggingarverkefni Nýs Landspítala sem fylgja á eftir meðferðarkjarna og rannsóknahúsi. Það felur í sér m.a. nýja geðþjónustu Landspítala, uppbyggingu aðstöðu fyrir dag- og göngudeildaþjónustu, viðbætur við legurými, bætta aðstöðu til krabbameinslækninga og öldrunarlækninga auk ýmissa stoðeininga.

Ásgeir Margeirsson, formaður stýrihóps um þróun uppbyggingu Landspítala.

16:50-17:00 Stutt hlé og fyllt á kaffibollann

17:00 Pallborðsumræður og spurningar.

17:30 Fundarslit

Fundarstjóri:
Áslaug Eva Björnsdóttir, ráðgjafi og teymisþjálfi og stjórnarkona Spítalans okkar.