Vel heppnað málþing 25.mars 26: Framtíðin er starfræn. Hvernig styrkir ný tækni nýjan Landspítala og heilbrigðiskerfið.

Landsamtökin Spítalinn okkar var með málþingið í Mýrinni, nýsköpunarsetri Vísindagarða HÍ, í Grósku þann 25.mars s.l. Vel við hæfi að halda málþingið þarna enda ekkert nema nýsköpunarfyrirtækjum á svæðinu. Salurinn var troðfullur, en um 7Málþing 25.mars 20260 manns komu á málþingið sem er meira en við áttum von á. 

Áslaug Eva Björnsdóttir stjórnarkona Spítalans okkar setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna. Hún stjórnaði jafnfram fundinum og pallborði í lokin. 

Dagskráin. 

​Sigurður Þórarinsson forstöðumaður Stafræn heilsu hjá Heilbrigðisráðuneytinu, fjallaði um tilurð og markmið verkefnisins Stafrænn heilsa, helstu verkefni og framtíðarsýn. Þessi þættir eiga eftir að umbylta fjölmörgun rútínuverkefnum lækna og heimsóknum sjúklinga. 

Arnar Þór Guðjónss, yfirlæknir háls-, nef- og eyrnalækninga Landspítala, fjallaði um nýjustu tækni og vísindi varðandi nýjustu tækni og vísindi og stafræna framþróun í nútíð og framtíð frá sjónarhóli læknis. 

Ólafur M Birgisson, sviðstjóri framkvasviðs NLSH, fór yfir stöðu framkvæmda við Hringbraut þar sem verið er að byggja nýjan meðferðarkjarna, rannsóknarhús, bílastæðahús og viðbyggingu við Læknagarð sem þjón. Jafnframt verður farið yfir stöðu framkvæmda við Grensás, bráðamóttöku í Fossvogi og útboð á viðbyggingu við sjúkrahúsið á Akureyri.

​​Ásgeir Margeirsson, formaður stýrihóps um þróun uppbyggingu Landspítala, fjallaði um ný verkefni sem Nýr Landspítali vinnur að til framtíðar eftir að meðferðarkjarna og rannsóknahúsi er lokið. Það felur í sér m.a. nýja geðþjónustu Landspítala, sem áformuð er við LSH í Fossvogi, áframhaldandi nýtingu LSH í Fossvogi, uppbyggingu aðstöðu fyrir dag- og göngudeilaþjónustu, viðbætur við legurými, bætta aðstöðu til krabbameinslækninga og öldrunarlækninga auk ýmissa stoðeininga rekstrarins. Að mati Ásgeirs er árið 2040 ekki á morgun heldur hinn í skilningi tímatals framtíðarinnar í heilbrigðismálum og horfa þarf til næstu áratugar þess vegna út öldina varðandi staðsetningu nýs spítala.  

Pallborðsumræður. Að loknu málþingi voru fjörugar umræður og spurningum svarað úr sal í öruggum höndum fundarstjórans Áslaugar Evu. 

Að því loknu flutti Þorkell Sigurlaugsson, stjórnarformaður Spítalans okkar, lokaávarp. Þakkaði hann fyrirlesurum fyrir frábæra fyrirlestra og Áslaugu Evu fyrir trausta fundarstjórn svo og öðru stjórnarfólki fyrir undirbúning málþingsins. Síðast en ekki síst þakkaði hann fundarmönnum fyrir frábæra þátttöku á málþinginu og fyrirspurnir. 

Málþinginu slitið um kl. 17.45.  Margar myndir voru teknar á málþinginu og sumar þeirra eru aðgengilegar hér að neðan.