Málþingið sem Spítalinn okkar var með þann 25.mars var afar vel heppnað. Málþingið fjallað stafræna framtíð og hvernig stafræn tækni og heilsa hefur jákvæð áhrif á heilbrigðiskerfið og hvernig ný tækni styrkir nýjan Landspítala og heilbrigðiskerfið.
Áslaug Eva Björnsdóttir, stjórnarkona í Spítalanum okkar setti fundinn og stjórnaði fundinum.
Það mættu um 70 manns á fundinn sem var langt umfram væntingar og salurinn í Grósku (Mýrinni frumkvöðlasetri) var troðfullur sjá mynd.
Dagskráin var þannig.
- Fyrst fjallaði Sigurður Þórarinsson, forstöðumaður stafrænnar heilsu hjá Heilbrigðisráðuneytinu um tilurð og markmið þessa verkefnis en hann flutti frá Landspítala til ráðuneytisins til að byggja upp þetta verkefni. Fjallað var um tilurð og markmið Stafrænnar heilsu, helstu verkefni og framtíðarsýn.
- Arnar Þór Guðjónsson, yfirlæknir háls, nef- og eyrnalækninga Landspítala fjallaði um nýjustu tækni og vísindi og stafræna framþróun í nútíð og framtíð frá sjónarhóli læknis.
- Ólafur M Birgisson, sviðsstjóri framkvæmdasviðs NLSH fór yfir stöðu framkvæma hjá Nýja Landspítala við Hringbraut þar sem verið er að byggja nýjan meðferðarkjarna, rannsóknarhús, bílastæðahús og viðbyggingu við Læknagarð. Jafnframt verður farið yfir stöðu framkvæmda við Grensás, stækkun bráðamóttöku í Fossvogi og útboð á viðbyggingu við sjúkrahúsið á Akureyri.
- Ásgeir Margeirsson, formaður stýrihóps um þróun uppbyggingu Landspítala fjallaði að lokum um nýjan Landspítali til framtíðar. Uppbyggingarverkefni Nýs Landspítala sem fylgja á eftir meðferðarkjarna og rannsóknahúsi. Það felur í sér m.a. nýja geðþjónustu Landspítala, uppbyggingu aðstöðu fyrir dag- og göngudeildaþjónustu, viðbætur við legurými, bætta aðstöðu til krabbameinslækninga og öldrunarlækninga auk ýmissa stoðeininga rekstrarins.
Að loknu kaffihlé með veitingum voru pallborðsumræður fyrirlesara og svarað spurningum frá málþingsgestum. Afar fróðlegar umræður.
Að lokum var Þorkell Sigurlaugsson formaður Spítalans okkar með nokkur lokaorð og sleit fundi um kl. 17.40.