9000 sjúklingar fluttir milli húsa Landspítala

Anna Stefánsdóttir formaður Spítalans okkar í viðtali í Mannlega þættinum á RÚV. Þar kom fram að mikið er um að flytja þurfi sjúklinga milli húsa Landspítala í Fossvogi og við Hringbraut.  Þetta á ekki síst við ef mikilvæg tæki eins og tölvusneiðmyndatæki bilar í öðru húsinu.  Bráðamóttaka Landspítali er í Fossvogi og mikið er um að flytja þurfi sjúklinga þaðan á legudeildir á Hringbraut. Á síðasta ári voru 9000 sjúklingar fluttir milli húsa.  Þetta sýnir þess að starfsemin verði sameinuð í nýju húsi.   Hér má hlusta á viðtalið. Viðtalið hefst 19-20 mín í þættinum.


Svæði

SPÍTALINN OKKAR

Landssamtök um uppbyggingu nýs húsnæðis Landspítala
spitalinnokkar@spitalinnokkar.is