Spítalinn okkar heimsækir Norðurland

Samtökin Spítalinn okkar leggja mikla áherslu á að kynna tilgang og markmið samtakanna fyrir öllum landsmönnum. Samtökin bjóða því Akureyringum og íbúum norðurlands í Menningarhúsið Hof helgina 8. og 9. nóvember. Þar gefst tækifæri til að hlusta á fróðleg erindi frá heimafólki um heilbrigðismál, sem og að kynna sér fyrirhugaða uppbyggingu Landspítala.  

Samtökin Spítalinn okkar munu kynna mikilvægi uppbyggingarinnar fyrir heilbrigðisþjónustu í landinu öllu, ræða mögulegar leiðir til fjármögnunar og kynna teikningar af fyrirhuguðum nýbyggingum.  Við hvetjum Akureyringa og íbúa Norðurlands til að hitta okkur í Menningarhúsinu Hofi, við hlökkum til að sjá ykkur.

Hægt er að smella á krækju til að skoða dagskrána í Hofi.

 


Svæði

SPÍTALINN OKKAR

Landssamtök um uppbyggingu nýs húsnæðis Landspítala
spitalinnokkar@spitalinnokkar.is