2. fundur stjórnar

2. stjórnarfundur  haldinn 28. apríl kl. 15.00 í Heilsuverndarstöðinni.

Mætt voru: Anna Elísabet Ólafsdóttir, Anna Stefánsdóttir, Bjarney Harðardóttir, Garðar Garðarson og Þorkell Sigurlaugsson. Gunnlaug Ottesen, Jón Ólafur Ólafsson boðuðu forföll

Gestir fundarins voru þeir Helgi Már Halldórsson, hönnunarstjóri SPITAL og Jóhannes M Gunnarsson, læknisfræðilegur verkefnastjóri

 

1 Fundargerð  samþykkt og undirrituð

2.  Helgi Már Halldórsson, hönnunarstjóri SPITAL  fór ítarlega yfir stöðuna á hönnun nýbygginga Landspítala. Fram kom í máli hans að lokið er  ríflega 25% hönnunar. Helgi Már sýndi og skýrði fyrir fundarmönnum hönnun meðferðarkjarna rannsóknarstofuhúss og sjúkrahótels ásamt skipulagi lóðar. Þá kynntu þeir Jóhannes ýmsar nýjungar sem ákveðið er að verði í nýbyggingunum s.s. PET scan og notkun róbóta.  Þeir félagar svöruðu spurningum fundarmanna og góðar umræður urðu um verkefnið.

Önnur mál

1. Aðrir dagskrárliðir felldir niður vegna tímaskorts

2. Ákveðið að halda næsta fund 5.  maí og ræða skipan í verkefnahópa

Fundi slitið kl. 18.00

Fundargerð ritaði Anna Stefánsdóttir

 


Svæði

SPÍTALINN OKKAR

Landssamtök um uppbyggingu nýs húsnæðis Landspítala
spitalinnokkar@spitalinnokkar.is