Fullnaðarhönnun nýs meðferðarkjarna Landspítala boðin út

Það eru sannarlega gleðifréttir að fullnaðarhönnun meðferðarkjarna Landspítala var boðin út síðastliðna helgi. Meðferðarkjarninn er geysilega mikilvæg bygging, sú stærsta í framkvæmdum við nýbyggingar Landspítala. Stærð hans er áætluð tæplega 60.000 m2 og hann mun hýsa alla bráðastarfsemi á einum stað, meðferðar- og legudeildir. Í útboðsauglýsingunni kemur fram að skila eigi tilboðum eigi síðar en 25. júní næstkomandi. Stjórn Spítalans okkar mun fylgjast með framgangi málsins.  Sjá útboðið hér


Svæði

SPÍTALINN OKKAR

Landssamtök um uppbyggingu nýs húsnæðis Landspítala
spitalinnokkar@spitalinnokkar.is