Aðalfundur Spítalans okkar verður þann 2. mars

Aðalfundur landssamtakanna Spítalinn okkar verður haldinn fimmtudaginn 2. mars 217 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura, í Víkingasal.

Dagskrá aðalfundar er sem hér segir:

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar lögð fram
3. Reikningar lagðir fram til samykktar
4. Lagabreytingar
5. Ákvörðun félagsgjalds
6. Kosning stjórnar og tveggja skoðunarmanna reikninga
7. Önnur mál

Að loknum aðalfundarstörfum mun Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri NLSH kynna áfangana í Hringbrautarverkefninu og Ögmundur Skarphéðinsson arkitekt hjá hönnunarteyminu Corpus segja frá hönnun hins nýja meðferðarkjarna Landspítala.

Lokaorð flytur Nichole Leigh Mosty alþingismaður og formaður velferðarnefndar Alþingis.

Stjórnin.  


Svæði

SPÍTALINN OKKAR

Landssamtök um uppbyggingu nýs húsnæðis Landspítala
spitalinnokkar@spitalinnokkar.is