Nýtt þjóðarsjúkrahús - ávinningur okkar allra

 

Spítalinn okkar, landssamtök um uppbyggingu nýs húsnæðis Landspítala, fagna því að framkvæmdir eru nú að hefjast við uppbyggingu og fullnaðarhönnun Landspítalans. Tilgangur samtakanna er að afla stuðnings við og fylgja eftir nauðsynlegum úrbótum á húsakosti spítalans, tæknibúnaði og aðstöðu sjúklinga og starfsfólks. Við Íslendingar höfum dregist hratt aftur úr öðrum þjóðum á undanförnum árum og er uppbygging Landspítala mjög mikilvægt hagsmunamál allrar þjóðarinnar.

Frá stofnun landssamtakanna í apríl 2014 hafa þau staðið að mörgum kynningarfundum um verkefnið. Samtökin hafa átt samræður við þingmenn og einstaklinga víðsvegar í samfélaginu og haldin hafa verið málþing bæði í Reykjavík og á Akureyri.

Fullnaðarhönnun á sjúkrahóteli er lokið og stendur útboðsferli vegna byggingar þess nú yfir. Gert er ráð fyrir að byggingu þess ljúki árið 2017 og að það verði tekið í notkun sama ár. Sjúkrahótelið verður á lóð Landspítalans og bætir það úr brýnni þörf ekki síst fyrir sjúklinga sem búa á landsbyggðinni.

Nútímaþarfir í fyrirrúmi

Í byrjun september skrifaði heilbrigðisráðherra undir samning við Corpus3 hópinn, sem er hópur arkitekta og verkfræðinga, um fullnaðarhönnun meðferðarkjarnans. Það var stór og mikilvægur áfangi. Meðferðarkjarninn er stærsta og flóknasta byggingin af nýbyggingum Landspítala. Hún er um 60.000 m² að stærð og er áætlað að hægt verði að taka hana í notkun árið 2021. Þar verður bráðamóttaka, myndgreining, gjörgæsla og skurðstofur með tækjabúnaði í takt við nútíma þarfir.  Einnig verða þar legudeildir fyrir veikustu sjúklingana sem verða um leið í nánd við alla þá aðstöðu sem þeir þurfa á að halda.

Starfsfólk tekur þátt í hönnun nýs spítala

Ferli fullnaðarhönnunar meðferðarkjarnans er hafið og mun byggja meðal annars á notendarýni á þeirri forhönnun sem liggur fyrir.  Ánægjulegt er að sjá hvernig Landspítali virkjar starfsmenn  í ferlinu enda er afar dýrmætt að þeir sem best til þekkja komi að verkefninu. Fjölmargir starfsmenn hafa á undanförnum vikum unnið með ráðgjafa og Corpus3 hópnum við að yfirfara fyrirliggjandi hönnun. Skoðað er hvað má betur fara og hvernig hægt er að ná sem bestum árangri við eitt flóknasta hönnunarverkefni okkar tíma. Lykilþættir við hönnunina eru aukin þjónusta og hagkvæmni í rekstri.

Langþráð sameining bráðastarfsemi spítalans

Þegar nýr meðferðarkjarni  verður tekinn í notkun eftir 7 – 8 ár lýkur sameiningu á bráðastarfsemi Landspítala. Sérgreinar spítalans verða þá á einum stað sem hefur í för með sér mikinn faglegan ávinning fyrir starfsmenn og nemendur í heilbrigðisvísindagreinum en ekki síst fyrir sjúklinga og aðstandendur þeirra. Ef fram fer sem horfir mun nýtt þjóðarsjúkrahús við Hringbraut marka þáttaskil í uppbyggingu á góðri heilbrigðisþjónustu.

Alþingi er mikilvægur bakhjarl

Endurnýjun á húsnæði Landspítala nýtur mikils stuðnings á Alþingi.  Vorið 2014 var samþykkt þingsályktun þar sem ríkisstjórninni var falið „að ljúka eins fljótt og verða má undirbúningi á endurnýjun og uppbyggingu Landspítala við Hringbraut í Reykjavík og hefja framkvæmdir þegar fjármögnun hefur verið tryggð“. Ályktun Alþingis var fylgt eftir í  fjárlögum þessa árs en þar er gert ráð fyrir 945 milljónum króna í verkefnið. Í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2016, sem nú er til umfjöllunar á Alþingi, er tillaga um 1.807 mkr. framlag. Þessi fjárframlög eru í samræmi við áætlanir bygginganefndar Nýs Landspítala ohf. (NLSH) sem heldur utan um framkvæmdina í samræmi við ákvörðun Alþingis með lögum nr. 64/2010 um byggingu nýs Landspítala við Hringbraut í Reykjavík. Þetta eru aðeins fyrstu skrefin og nú þarf að tryggja að framhald verði á og að áætlanir byggingarnefndar gangi eftir.

Á döfinni hjá Spítalanum okkar

Spítalinn okkar, landssamtök um uppbyggingu nýs húsnæðis Landspítala, fagna þeim jákvæðu skrefum sem tekin hafa verið á liðnum árum en mikilvægt er að fylgja þessu verkefni vel eftir. Baráttu okkar er ekki lokið og heilbrigðisstarfsfólk og  almenningur í landinu þarf að fylgjast vel með því að ekkert bakslag verði í stuðningi stjórnvalda og eftirfylgni. Samtökin Spítalinn okkar standa fyrir málþingi þriðjudaginn 13. október þar sem rædd verða þau tækifæri sem felast í framkvæmdinni ekki síst fyrir fyrir sjúklinga, starfsfólk og landsmenn alla. Málþingið er öllum opið og Spítalinn okkar býður áhugafólk um uppbyggingu þjóðarsjúkrahúss hjartanlega velkomið á hótel Reykjavík Natura þann dag.

Stjórnarmenn Spítalans okkar

Anna Stefánsdóttir

Gunnlaug Ottesen

Jón Ólafur Ólafsson

Kolbeinn Kolbeinsson

Oddný Sturludóttir

Sigríður Rafnar Pétursdóttir

Þorkell Sigurlaugsson


Svæði

SPÍTALINN OKKAR

Landssamtök um uppbyggingu nýs húsnæðis Landspítala
spitalinnokkar@spitalinnokkar.is